14.01.2010 08:59

Ferð á byssusýningu    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Fimmtudagur, 14. Janúar 2010 08:59

Byssusýning Veiðisafnsins

Nokkrir félagar hafa hug á að bregða sér á Byssusýningu Veiðisafnsins á Stokkseyri helgina 6-7 febrúar, og er þá frekar horft á sunnudaginn 7.

Í boði gæti verið pakki sem kallst Safnið og súpa, sem er þá humarsúpa á Fjöruborðinu sem er líka á Stokkseyri,

sem aðalréttur með brauði og aðgangur að safninu fyrir kr 2600.- á mannin.

Það er spurning ef áhugi væri fyrir hendi og nægur fjöldi næðist að athuga með hópferðabíl, nú eða ef menn vildu frekar reyna að safnast saman í einkabíla og deila eldsneytiskostnaði.

Okkur þætti gott að fá að heyra í ykkur fljótlega (þe. Seinnipart næstu viku) hvort áhugi sé fyrir hendi og hvor ferðamátinn yrði fyrir valinu, og ef einkabíllinn yrði valin hvort menn vildu leggja til bíl til fararinnar. Nú eins ef að menn vildu frekar fara á laugardaginn og kíkja þá kænski í Hlað eða Ellingsen í leiðinni Best væri að þið senduð okkur póst á annaðhvort:

[email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Jón

eða

[email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Indriði

Kveðja

Strákarnir í Skemmtinefndinni

Jón og Indriði

 

Áramótamót    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Mánudagur, 14. Desember 2009 14:01

Jæja, Þá er vetur í garð genginn, Þeas amk samkvæmt dagatalinu þó að það sjáist hvergi snjór.

Vetrardagskráin hjá Ósmann er á fullu, Fundir fyrsta mánudag í mánuði og allt á fullu, Kraftur 2009 gekk mjög vel og erum við sáttir eftir þá helgi og horfum til framtíðar með næstu sýningu.

Lítið annað að frétta úr starfinu, Það gengur bara fyrir sig eins og venjulega, Nokkrir félagsmenn fóru og settu upp ljósstaur út á svæði um daginn og mun það bæta alla aðkomu að svæðinu allverulega.

Hugmynd er kominn upp hjá nokkrum félagsmönnum að hafa áramótamót, Eða lítinn hitting hjá félagsmönnum milli jóla og nýárs, Þannig að takið frá þann tíma, Nánar auglýst síðar.

 

Kraftur 2009    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Mánudagur, 09. Nóvember 2009 13:02

Reiðhöllinn Svaðastaðir standa fyrir útivistarsýningu í Skagafirði laugardaginn 14.nóv og Skotfélagið Ósmann mun taka virkar þátt í því.

Við verðum staðsett í andyrinu á reiðhöllinni og munum þar sýna fólki byssur,boga og ýmsa hluti tengda Skotveiði, Hvetjum alla til að mæta. Laugardagurinn 14. nóv frá kl 10 til 18

Einnig munum við leifa fólki að prófa að skjóta af alvöru boga frá kl 14 til 18

 

Margt fleira verður á þessari sýningu t.d. jeppar,mótorhjól,snjósleðar,kajakar og skúta ásamt því að björgunarsveitirnar í firðinum verða með sín tæki og tól til sýnis.

 

Fréttir    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Föstudagur, 09. Október 2009 15:13

Frekar lítið að frétta þessa dagana hjá Ósmann, ánægðir með sumarið sem er núna á enda, Byrjaðir aftur með mánaðarlegu fundina okkar. Villibráðarkvöld á dagskrá fljótlega og vonumst við til að sjá sem flesta félaga þar.

Annars er alltaf eitthvað um að vera hjá okkur á vellinum. Núna á laugardaginn verðum við með verklegt námskeið fyrir Umhverfisstofnun, fyrir þá sem að eru búnir að sitja á skotvopnanámskeiði hérna síðustu daga.

En mig dauðlangaði að deila með ykkur flottu video-i sem að ég rak augun í um daginn.

http://www.youtube.com/watch?v=QfDoQwIAaXg&

 

Villibráðakvöld 24 október 2009    
Skrifað af Einar Stefánsson.
Miðvikudagur, 07. Október 2009 08:06

Ágætu félagar.
Villibráðarskemmtinefndin hefur ákveðið að blása til villibráðarkvölds
Laugardaginn 24.10.09. á Kaffi Krók húsið opnar kl 19.30 og borðhald hefst kl
20.00 , miðaverð er áætlað að fari alls ekki yfir kr. 5000- pr, mann. Og verða
þeir afhentir á staðnum.
Í boði verður dýrindis villibráðarhlaðborð ásamt hefðbundnari réttum,
veislustjóri verður Jón Hallur og skemmtiatriði að hætti félagsins, ásamt
glæsilegu miðahappdrætti.
Það er von okkar félagana í skemmtinefndinni að sem flestir sjái sér fært að
koma og eiga með okkur skemmtilegt kvöld. En til að við vitum nokkurn veginn
fjöldann í matinn væri gott ef þið létuð vita í tíma hvort þið komið og hve
mörg, að sjálfsögðu er heimillt að bjóða gestum eins og venjulega.

Vinsamlega tilkynnið þáttöku til:

Jóns í s.8691759 eða [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða
Indriða í s.8254627 eða [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Kv.
Nefndin

01.09.2009 08:36

Opnu dagarnir    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Þriðjudagur, 01. September 2009 08:36

Síðasti formlegi opni dagurinn á skotsvæði Ósmanns var í gær mánudaginn 31. ágúst, Fín mæting var eins og vant er, Bæði af félagsmönnum sem og utanfélagsmönnum,

Einnig kom Björn Sighvatz með vöfflur og bakaði sem voru borðaðar af bestu list og þökkum við honum fyrir veitingarnar.

Þó svo að þetta hafi verið síðasti skipulagði opnidagurinn, Þá er aldrei að vita nema þeir gætu orðið nokkrir í september, Það fer eiginlega eftir veðri og áhuga hjá fólki hvort að af því verður.

 

Skemmtikvöldið Laugardaginn 29. ágúst    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Fimmtudagur, 27. Ágúst 2009 18:37
Þá er skemmtinefndin búin að funda og ákveða smá dagskrá á laugardaginn og var ég að fá hana í hendurnar.
Mæting er á laugardaginn 29. út á Skotsvæði Ósmanns kl 14:00 og er planið að kveðja sumarið með stæl.
Ætlunin er að hafa smá "keppni" sem í rauninni er bara til gamans fyrir okkur öll.
Fyrst verður keppni í riffilskotfimi, Og notast verður eingöngu við 22 L.R. riffla, Endilega flestir að mæta með sína, Alveg sama hvort þeir eru með sigtum eða kíki, Skotið verður á mismunandi skotmörk en fjarlægðin verður við hæfi þar sem að vonandi koma líka einhverjir með sigti.
Ef að einhver á ekki 22 riffil þá er það ekkert vandamál, Það verða einhverjar byssur á svæðinu sem hægt er að nota, T.d. á félagið einn riffil, En það væri samt fínt ef að fólk gæti þá mætt með skot í staðinn.
Svo verður einhverskonar keppni í haglabyssu sem verður tilkynnt á staðnum, Það sama gildir þar, Endilega sem flestir að mæta með eigin byssur, En sama og með riffilinn þá verða byssur á staðnum sem að hægt verður að nota, En þá væri fínt ef að hægt væri að mæta með skot.
Svo verður líka einhverskonar bogaskotfimi sem að verður betur tilkynnt á staðnum.
Í lokin verðum við svo með grill og fínt ef að hver gæti komið með eitthvða á grillið fyrir sig og sína, Eða nokkrir hópað sig saman og keypt eitthvað á grillið handa sér.
__________
Vonandi sjáum við sem flesta og eins og með alla skemmtidagana hjá okkur þá er þetta opið fyrir alla.

17.08.2009 22:20

Þriðja skemmtikvöld Ósmann    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Mánudagur, 17. Ágúst 2009 22:20

Búið er að ákveða að tíma á þriðja skemmtikvöld ósmann, Það verður haldið laugardaginn 29. ágúst og byrjar kl 14:00

Keppt verður í þríþraut, Því verður haldið leyndu þangað til að dagurinn byrjar hvernig þessu verður háttað til að auka gamanið, En það verður keppt í riffli, haglabyssu og boga þrautum.

Í lokin verður svo grillað og haft gaman.

Allir velkomnir og vonum við að sjá sem flesta.

 

Seinagangur    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Mánudagur, 17. Ágúst 2009 13:15

Seinagangur hefur verið hjá Vefstjóra með að setja inn ljósmyndir frá veiðirifflakvöldinu vegna smá vandamála með gallery kerfið á síðunni, Núna er það hinsvegar komið í lag og myndirnar byrjaðar að hlaðast inn,

Hægt er að skoða þær hér

Aðrar fréttir af félaginu eru svo sem engar, Komum vel út úr sumrinu, Mjög mikið búið að framkvæma á svæðinu þetta sumarið, Þar má helst nefna stækkun á klúbbhúsinu og lagningu á rafmagni inn á svæðið.

Svo samkvæmt öllu þá eru eftir 3 mánudagar af opnu dögunum sem hafa verið hjá okkur í allt sumar og fólk hefur verið duglegt að mæta, Höfum verið að fá slatta af utanfélagsfólki einnig í heimsókn og er það bara gott mál.

Hreindýraveiðimenn hafa sést hjá okkur nokkuð mikið síðustu vikur að æfa sig fyrir tímabilið, Enda erum við með frábæra aðstöðu til þess. Skotmörk á 25,50,100,150 og 200m færi.

En sumarið er nú samt ekki enn búið hjá okkur, Enn er eftir þriðji og síðasti skemmtidagurinn hjá okkur sem að byrjaði með frábæru herrifflakvöldi og svo núna 23. júlí síðastliðinn vorum við með veiðirifflakvöld sem var mjög vel mætt á, Nánar auglýst með þriðjakvöldið síðar.

 

Veiðirifflakvöld    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Mánudagur, 27. Júlí 2009 19:40

Mæting á Veiðirifflakvöldið fór fram úr björtustu vonum þrátt fyrir leiðinda veður, norðan sudda og grátt í Stólnum, en menn létu það ekki á sig fá og skelltu sér bara í gæsagallan en alls mættu um 15 mans, sem er uþb. ¼ félagsmanna geri aðrir betur.

Skotið var á mörk á 200 – 150 – 100 og 50 metra færi, stærð 15x15cm, 12,5x12,5cm, 10x10cm og 7,5x7,5cm, frá borði á 200m, liggandi á 150m, krjúpandi á 100m og standandi á 50m tvö skot á hvert, en þar sem ekki var beint boðlegt að leggast í bleytuna voru 150m teknir á borði líka í þetta sinn.

Gamann var að sjá hve vopna flóran var fjölbreytt þarna gat að líta allt frá 100 ára Carl Gustaf M96 og Remington 710 yfir í SakoTRG og Sauer 202 og cal frá 22-250 og 6mmppc til 375HH og 450Marlin og flest sem er algengt þar á milli.

Menn kvöldsins að öllun ólöstuðum voru nafnarnir Eyjólfur Ingiberg Geirsson og Eyjólfur Þ. Þórarinsson, Eyberg fyrir að vera sá eini til að hitta öll mörkin og Eyjólfur Þ. fyrir að hitta 50m sjónaukalaust.

Smávægilegir tæknilegir örðugleikar voru að hrjá skotmörkinn en menn létu það ekki spilla skemmtuninni, og verður það leyst af tæknisviði fyrir næsta kvöld.

Þrátt fyrir allt var ekki annað að heyra menn skemmtu sér prýðilega og þetta verði endurtekið í síðasta lagi að ári.

Skemmtinefndarfulltrúarnir.

Ps. Ef menn hafa hugmyndir um framsetningu á 3þrautar deginum (riffill, bogi, haglari) þá endilega að hafa samband

Jón [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Indriði [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Veiðirifflakvöld.    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Fimmtudagur, 16. Júlí 2009 09:18
Veiðrifflakvöld verður haldið hjá Skotfélaginu Ósmann fimmtudaginn 23
júlí. kl 19:30

Fyrirkomulag verður þannig að skotið verður liggjandi, sitjandi og
standandi á mismundandi skotmörk á mismunandi fjarlægðum og skotið 3
skotum á hverri stöð.

Ef vilji er hjá mönnum að leyfa öðrum að prófa sinn riffil þá er það
gott mál en ef ekki þá er ekkert að því og þá myndi það vera gert eftir
að þeir sem eru með sína riffla séu búnir með skotstöðvarnar og þá yrði
skotið af borði.

Vonum að sem flestir mæti til að koma saman spjalla, skjóta, sjá hvað
aðrir eru með og hafa gaman af þessu.
Endilega takið frá þetta kvöld.

Skemmtinefndarfulltrúarnir.

 

Skemmtidagurinn    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Sunnudagur, 12. Júlí 2009 22:19

Þá er skemmtidagur Ósmann liðinn, Dagurinn tókst frábærlega, Grillað í góðu veðri og í góðum hóp.

Ég skellti inn nokkrum myndum af deginum á síðuna, Hægt er að skoða þær hér

Ég vill þakka öllum fyrir frábæran dag, Þetta verður örugglega gert aftur

 

Bankaupplýsingar

Nafn:

Skotfélagið Ósmann

Farsími:

Jón Pálma 858-9233 Erlingur 852-2506

Heimilisfang:

Háahlíð 12

Staðsetning:

550 Sauðárkrók

Kennitala:

500791-2099

Bankanúmer:

0310---26---001900
Flettingar í dag: 603
Gestir í dag: 111
Flettingar í gær: 609
Gestir í gær: 149
Samtals flettingar: 372722
Samtals gestir: 47769
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 21:13:17